Umbúðamiðlun ehf leigir út fjölnota umbúðir undir matvæli, bæði ker og kassa. Við erum mest áberandi í sjávarútvegi og stærstu viðskiptavinir okkar eru fiskmarkaðir, útgerðir, fisk-vinnslur og fiskiskip. Kerin eru 460 L og 660 L, kassarnir 60 L og henta undir hvaða matvæli sem er.